Veitingar

Rekstur veitingasviðs var sá umfangsmesti frá upphafi

Rekstur veitingasviðs Bláa Lónsins árið 2017 var sá umfangs- og veltuhæsti frá upphafi. Litlar breytingar urðu á reglulegri starfsemi en rekstur Lava Restaurant og Blue Café í Bláa Lóninu gekk afar vel. Eins og áður var lögð höfuðáhersla á framúrskarandi gæði hráefnis og þjónustu.

Mikil áhersla hefur verið lögð á þjálfun starfsfólks veitingasviðs og sóttu starfsmenn þess áfram þjálfun á veitingastaðinn Texture í London, en staðurinn er með tvær Michelin stjörnur. Rétt eins og á síðasta ári náðu nemar á veitingasviði Bláa Lónsins góðum árangri í innlendum og erlendum keppnum.

Hjá Bláa Lóninu starfar mikill fjöldi fagfólks og nema og er það skýr vitnisburður um þá áherslu sem lögð er á gæði þjónustu og fagmennsku á öllum sviðum. Þannig stuðlar veitingasvið Bláa Lónsins að eflingu greinarinnar í heild. Á þriðja hundrað manns starfa hjá veitingasviði, þar af:

  • 31 matreiðslunemi
  • 19 framreiðslunemar
  • 26 matreiðslusveinar og -meistarar
  • 29 framreiðslusveinar og -meistarar
  • 3 bakarar/konditor

 

 

Gríðarlegt umfang veitingaþjónustu

Það eru ekki allir sem átta sig á umfangi veitingaþjónustunnar í Bláa Lóninu. Lava Restaurant og Blue Café eru afar þéttsetnir staðir árið um kring, en samhliða mikilli fjölgun starfsmanna hefur rekstur á mötuneyti Bláa Lónsins vaxið til muna.

 

 

93 þúsund

langlokur smurðar

20 tonn

af lambalundum

4 tonn

af osti í sneiðum

200 tonn

af grænmeti og ávöxtum

12 tonn

af hveiti í brauð

52 tonn

af fisk frá Grindavík

25 tonn

af nautalundum

10 tonn

af smjöri

 

Spennandi tímar framundan á The Retreat

Undirbúningsvinna vegna opnunar The Retreat einkenndi rekstrarárið. Veitingasvið Bláa Lónsins rekur þar tvo veitingastaði, Moss Restaurant og Spa Restaurant. Þá tók sviðið yfir veitingarekstur á Silica Hotel seinni hluta árs 2017.

Start typing and press Enter to search